9.10.2008 | 12:15
Blóð og brenna
Mikið var!
Hvers vegna voru eignir auðmanna ekki frystar strax - um leið og ljóst var að hér var allt í kalda koli.
Hvers vegna eru eignir þessarra manna - sem einir halda ró sinni í ósköpunum sem dynja yfir okkur - ekki látnar greiða innistæður í erlendum fyrirtækjum íslenskra banka? Það eru þeir sem hafa mokað peningunum út úr þessum fyrirtækjum til að berast á.
Hvers vegna á venjulegum Íslendingum að blæða til ólífis, horfandi á fátæklegar eignir sínar brenna til ösku á meðan hryðjuverkamennirnir stæra sig af því að hafa náð að stökkva frá borði með gullkistur sínar?
Eða, áttum við að upplifa létti þegar fréttist að "auðmönnum" þjóðarinnar væri borgið?
Hvert var markmiðið með fréttinni?
Og hafi Davíð Oddsson - sem einn Íslendinga hefur gerst uppvís að einræðistilburðum - ekki frétt það, þá virðist þjóðin þeirrar skoðunar, í auknum mæli, að hann segi af sér stöðu Seðlabankastjóra. En það er nú eins og það er með Davíð og lýðræðið.
Vill seðlabankastjórana burt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.10.2008 | 10:35
Hryðjuverkaviðbrögð
Ekki veit ég hvort okkur Íslendigum var ætlað að móðgast yfir þessari frétt - en víst er að fréttir úr breskum fjölmiðlum eru sérvaldar ofan í okkur. Eina leiðin, hins vegar, til að fá einhverja glóru í það sem er að gerast hér á landi er að lesa breska fjölmiðla, því stefna stjórnvalda hér - sem og taglhnýtinga þeirra, fjölmiðla - er að halda þjóðinni í sem mestri fávisku um það sem er að gerast. Við fáum bara snyrtilegar fréttir um að FME hafi yfirtekið hinn eða þennan bankann.
Það er alveg sama um hvað ráðamenn og bankamenn hér eru spurðir, þeir "geta" ekki tjáð sig um málið og blaðamenn á Íslandi eru annað hvort of fávísir sjálfir, eða of kurteisir við þetta fólk (sem hefur ýmist verið kosið til að halda utan um hagsmuni okkar, eða treyst fyrir peningum þjóðarinnar), til að þjarma að þeim og heimta svör eða upplýsa okku um hvað þagnir þess þýða. Þeir komast endalaust upp með að kenna öðrum um. Nú síðast, forstjóri Kaupþings, sem segir allt Bretum að kenna.
Bresku fjölmiðlafólki er hins vegar alveg sama hvað fjárglæframönnum og stjórnmálamönnum á Íslandi finnst um skrif þeirra og hafa engar áhyggjur af því að hafa vit á hlutunum og fjalla heiðarlega um þá. Þeir eru ekkert feimnir við að útskýra hvers vegna Davíð Oddsson ætti alls ekki að vera seðlabankastjóri - og eru farnir að hæðast að honum.
Sjá www.bbc.co.uk sem dæmi, þar sem hægt er að rekja sig í gegnum miklar upplýsingar og greiningar á ástandinu á Íslandi.
Það hlýtur að teljast rökrétt að beita hryðjuverkalögum á íslensku fjármálafyrirtækin - því afleiðingar hinnar "glæsilegu" íslensku útrásar eru að valda skaða hjá mun fleiri einstaklingum en til dæmis árásin á Tvíburaturnana í New York. Miltisbrandurinn ógurlegi er barnaleikfang í samanburði við skaðann sem græðgi fjármálageirans hefur valdið.
Það er kaldhæðnislegt í þeim vestræna heimi sem hefur lagt ómælda peninga og orku í að treysta hryðjuverkavarnir og -viðbrögð seinustu árin til að utanaðkomandi glæponar geti ekki skemmt eina einustu skrúfu fyrir okkur, að hryðjuverkaárásirnar skuli hafa komið innan frá - úr innsta kjarna þeirra sem okkur hefur verið kennt að treysta fyrir framtíð okkar og gæfu. Þetta eru menn sem hafa sent efnahangslegan miltisbrand í gegnum peningapípur heimsins.
Það er ekki laust við að manni finnist maður staddur í gamalli þjóðsögu. Íslenskir ráðamenn standa eins og gamall fávís bóndakurfur úti á hóli, skimandi í allar áttir til að tryggja að enginn vaði inn á hans lóð á meðan fáráðurinn, sonur hans, brennir húsin til grunna, með manni og mús.
En svo má auðvitað ekki skamma fáráðinn...
Hryðjuverkalög gegn Landsbanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.4.2008 | 08:47
Trúverðugleiki fræðasamfélagsins á Íslandi
Jæja, þá hefur rektor HÍ birt niðurstöðu sína eftir að hafa legið undir feldi sínum hugsi lengur en menn hafa áður gert í skráðum heimildum íslenskum. Getur verið að þetta sé rektorinn sem lét það verða eitt sitt fyrsta embættisverk að lýsa því að hennar helsta markmið væri að gera HÍ að einum af hundrað bestu háskólum í heimi?
Á hverju eiga gæði þessa hingað til ágæta skóla að byggja?
Það hefur tekið heila öld að byggja Háskóla Íslands upp og gera hann gildandi meðal menntastofnana á alþjóðlega vísu. Hornsteinn fræðasamfélagsins er vísindaleg vinnubrögð (til dæmis við meðferð heimilda) en nú hefur rektor ákveðið að þau þurfi ekki að gilda í HÍ.
Rithöfundar hafa um árabil barist fyrir lögverndun höfundarréttar og ljóst að réttarkerfið er sammála þeim rétti. Rektor virðist á annarri skoðun.
Það er tóm vitleysa að halda því fram að Hannes Hólmsteinn hafi rýrt traust Háskóla Íslands með vinnubrögðum sínum. Hann hefur aðeins lagt eiginn orðstýr í rúst. Hins vegar er það rektor HÍ sem hefur rýrt traust skólans, svo um munar, með því að sjá ekki sóma sinn í að víkja Hannesi úr starfi.
Hið alþjóðlega fræðasamfélag mun frétta af niðurstöðu háskólarektors - og í kjölfarið spyrja hvort íslenskum fræðimönnum sé treystandi. Rektor hefur ekki aðeins rýrt traust Háskóla Íslands, heldur grafið undan trúverðugleika íslenskra fræðimanna til lengri tíma.
Ætla prófessorar og aðrir fræðimenn við Háskóla Íslands að una því?
Átelur vinnubrögð Hannesar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Súsanna Svavarsdóttir
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.12.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar