Það er skömm að þessu

Við skulum nú bara rétt vona að ný ríkisstjórn hverfi út af þeirri efnahangsstefnu sem mörkuð var í tíð síðustu ríkisstjórnar....

Hvers vegna heldur Geir að hann hafi þurft að taka pokann sinn?

Það var einfaldlega vegna þess að þjóðin vildi ekki þá efnahagsstefnu sem hann markaði.

Að lýsa því yfir að ríkisstjórnin hafi fallið vegna "haturs á einum manni," bendir til að það slái einhverjum vírum saman í hausnum á Geir. Það styður líka enn frekar grun þjóðarinnar um algert heyrnarleysi hans.

Í alkohólfræðunum myndi Geir vera skilgreindur sem verulega "dysfunctional" manneskja. Ef bara er tekið mið af bullinu í honum núna, þá:

 (1)afneitar hann staðreyndum, það er að segja þeim staðreyndum að hann og félagar hans í Sjálfstæðisflokknum bera primer ábyrgð á því frelsi sem ríkt hefur á íslenskum peningamarkaði. Frelsi sem byggist á því (a la Friedman og Chicagoskólinn) að sem lagarammi utan um peningamarkaðinn sé lítill og óljós, helst enginn - til að fé geti flætt óheft út úr landinu í höndum þeirra sem kunna að notfæra sér slíkt til að verða "viðbjóðslega ríkir." Afneitun á því að það er grafalvarlegt mál að semja um lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það hefur sýnt sig í fjölmörgum löndum heims (m.a. Suður-Afríku, Póllandi, Rússlandi, Tælandi, svo eitthvað sé nefnt), að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn leiðbeinir ekki þjóðum sem taka lán um efnahagsbætur (eins og reglur sjóðsins sögðu fyrir um þegar hann ar stofnaður að undirlægi Keynes), heldur krefst, skipar og drottnar. Það sjáum við nú þegar á því að það er Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem ræður stýrivöxtum á Íslandi í dag. Geir afneitar algerlega þeirri staðreynd að þjóðin vildi fyrst og fremst Sjálfstæðisflokkinn í burtu með sínar efnahagsráðstafanir sem eru að steypa heimilum landsins í glötun. En það er hluti af ferlinu sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerir kröfu um. Þar á bæ sjá menn efnahagshrun þjóðar sem tækifæri. Alþýðan skal pínd og kvalin þangað til hún er orðin svo aum að hún samþykkir að galopna allar sínar eigur og auðlyndir fyrir erlendum gróðafyrirtækjum. Þeir hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum kalla það "endurfæðingu," þjóðar. En fyrst skal strippa hana af öllum möguleikum og sjálfsvirðingu, snúa öllu gildismati á hvolf, skera niður félags- og þjónustkerfið, afnema lágmarkslaun, fjarlægja verðhömlur, keyra upp verðbólguna, skapa atvinnuleysi; láta hana svelta.  Kannast einhver við þessa mynd?

(2) kennir öðrum um, það er að segja, hann kennir Samfylkingunni um stjórnarslitin og heldur því fram upp í opið geðið á okkur kjósendum að það sé vegna haturs á einum manni! Stjórnarslitin eru honum sjálfum að kenna. Þjóðin hefur mótmælt aðgerðum hans og aðgerðarleysi í þrjá mánuði. Hann hlustaði ekki og það hlaut að enda með því að flokkur sem hefur snefil af mannúð á stefnuskrá sinni, hlaut að gefast upp á samstarfinu. Ástæðan fyrir því að stjórnarsamstarfinu lauk, er sú að Geir sjálfur upplýsti þjóð og þing um aðgerðir í efnahagsmálum, heldur hélt sínu striki, undir stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, að steypa þjóðinni endanlega í glötun. Geir hlustaði hlustaði hvorki á þjóð né þing. Einhvers staðar þætti þetta vísbending um að Geir hataði sína þjóð.

(3) ranghugmyndir, það er að segja, Geir hefur virkilega náð að sannfæra sjálfan sig um að hann sé besti maðurinn til að leiða þessa þjóð - jafnvel þótt þjóðin, með bláedrú raunveruleikaskyn af sjokki, hafi eytt ómældum tíma og orku í að koma honum í skilning um annað.

Sjálfstæðisflokkurinn er í dag eins og hundveikur alkohólisti sem kúgar fjölskylduna sína, beitir hana ofbeldi og er alveg sama hvað verður um hanna - bara að hann fái sitt fix.

Átök og einhver misklíð hlýtur að teljast eðlileg í stjórnarsamstarfi tveggja flokka. Ef það er einhver framandi staða fyrir Geir, hlýtur það að vera vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn þekkir helst samstarf þar sem hann kúgar samstarfsflokk sinn. Það er skömm að þessu.


mbl.is Geir óttast sundrung og misklíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Súsanna Svavarsdóttir

Höfundur

Súsanna Svavarsdóttir
Súsanna Svavarsdóttir

Færsluflokkar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...andlit_unni
  • Snæfellsjökull

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband